Bláskeljarækt
Bláskeljarækt hófst við strendur Frakklands fyrir rúmum 700 árum þegar írski skipbrotsmaðurinn Patrick Walton tók eftir því að kræklingalirfur söfnuðust á net sem hann notaði til sjófuglaveiða, en netin hafði hann strengt á milli staura. Enn í dag er bláskeljarækt með svipuðu sniði í Frakklandi en þá er reipi vafið um staura í flæðarmálinu. Algengasta aðferðin um víðast hvar er þó hin svokallaða línurækt sem nánar má lesa um í kaflanum um ræktunaraðferðir.

Bláskeljarækt er gríðarstór atvinnuvegur víðs vegar um veröld en ársframleiðsla er á bilinu 1.6-1,8 milljónir tonna. Minnkandi framleiðsla er innan Evrópu vegna aukinnar mengunar strandsvæða en eftirspurn eftir bláskel eykst þó ár frá ári.