Starfsemi Norðurskeljar hefur þróast á þann veg að ferðaþjónusta er orðin kærkomin hliðarbúgrein bláskeljaræktarinnar. Má segja að það hafi komið til af tvennu en vinnubátur fyrirtækisins er gamla Hríseyjarferjan Sævar (í dag Eyrún) og er því fullbúið farþegaskip auk þess að vera fyrirtaks vinnubátur. Auk þessa virðist áhugi fólks á ræktinni vera það mikill að æ fleiri óska eftir að fá að kynnast henni með eigin augum. Hefur í þeim tilgangi verið farið að línunum og þeim lyft úr sjó þannig að sjá má hvað þar er í gangi. Ekki spillir svo fyrir að fá að smakka á bláskelinni sem er elduð og borin fram um borð.

Auk þess að skoða bláskeljaræktina geta menn skipulagt ferðir hvert sem er á Eyjafjarðarsvæðinu og haft dagskrána eftir eigin höfði. Kemur þar nánast allt til greina, hvort sem um ræðir skólahópa, vinnustaði, óvissuferðir eða hvað sem vera kann. Um borð eru sjóstangir ef menn vilja veiða í soðið, hægt er að fara í hvalaskoðun, skoða fuglabjarg eða að sigla á vit miðnætursólarinnar Þá er einnig til staðar slöngubátur þannig að unnt er að taka land nánast hvar sem er í firðinum ef þess er óskað.
Allar nánari upplýsingar má fá í síma 866-8077 eða með því að senda póst á netfangið skel@skel.is