Norðurskel
Þann 7. maí árið 2000 var fyrirtækið Norðurskel stofnað eftir tveggja ára undirbúningsvinnu en aðsetur Norðurskeljar er í Hrísey. Í október sama ár var hlutafé aukið lítillega auk þess sem fram fóru eigendaskipti að hluta. Í mars árið 2005 varð svo margföld aukning á hlutafé þegar fjárfestar komu að fyrirtækinu með um 60 milljónir króna í nýtt hlutafé. Í dag eiga fjárfestar um 75% hlutafjár í fyrirtækinu en frumkvöðlar um 25%. Eigendur úr hópi fjárfesta eru Upphaf, Tækifæri, Samvinnutryggingar, Sæplast, Akureyrarbær og Byggða- stofnun en frumkvöðlar eru Víðir Björnsson, Steinþór Guðmundsson, Þórarinn Þórarinsson og Guðni Björn Gunnlaugsson.

Markmið
Markmið fyrirtækisins er að byggja upp arðbæra og visvæna atvinnugrein við ræktun bláskeljar (kræklings) og er stefnt að 1.000 tonna ársframleiðslu árið 2010. Ræktuð verði bláskel í hæsta gæðaflokki og meirihluti framleiðslunnar fluttur á erlenda markaði, enda ljóst að heimamarkaður getur aðeins tekið við litlum hluta fyrirhugaðrar framleiðslu. Áhersla verði lögð á að framleiðslan verði sem vönduðust og að hið hreina umhverfi við strendur Íslands skili sér í meiri gæðum vörunnar en almennt þekkist á erlendum mörkuðum. Þá verði þess sömuleiðis gætt að ferskleiki vörunnar verði tryggður allt frá uppskeru til markaðar.
